2.4.2007 | 18:10
Rangar upplýsingar og alvarlegar afleiðingar
Í auglýsingunni sem Frjálslyndi flokkurinn birti gegn innflytjendum í Fréttablaðinu í gær er því haldið fram að í EES-samningnum sé til undanþáguákvæði sem samið hafi verið um á sínum tíma og varði "innflutning verkafólks frá aðildarlöndum EES." Þetta er ekki rétt. Engin slík undanþága er til. Hins vegar létu íslensk stjórnvöld fylgja með samningnum einhliða yfirlýsingu um beitingu öryggisráðstafanna ef samningurinn hefði í för með sér grundvallarröskun á íslensku þjóðfélagi. Þessi einhliða yfirlýsing íslensku ríkisstjórnarinnar er svona:
"Vegna einhæfs atvinnulífs og fámennis lýsir Ísland þeirri túlkun sinni að það geti í samræmi við skyldur sínar samkvæmt samningnum gripið til öryggisráðstafana ef af framkvæmd samningsins leiðir einkum:
alvarlega röskun jafnvægis á vinnumarkaði vegna meiri háttar flutninga starfsfólks sem beinast að sérstökum svæðum, störfum eða atvinnugreinum; eða
alvarlega röskun jafnvægis á fasteignamarkaði."
Þessi yfirlýsing var hugsuð sem neyðarréttur. Engin slík neyð hefur skapast á Íslandi sem getur réttlætt að Ísland grípi til einhliða aðgerða og takmarki rétt fólks frá EES-svæðinu til að starfa hér á landi. Ef Ísland myndi eigi að síður grípa til slíkra aðgerða er næsta víst að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins myndi svara með því að þrengja með sama hætti að atvinnuréttindum Íslendinga í Evrópu. Íslendingar sem starfa í Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi, Tékklandi og Póllandi geta því farið að pakka saman ef Frjálslyndi flokkurinn kemst til valda 12. maí.
Ef þessi þróun fer á annað borð af stað þá uppfyllir EES-samningurinn ekki lengur kröfur um einsleitni á öllu EES-svæðinu, sem er algert frumskilyrði í samningnum, og myndi smám saman trosna upp og að lokum hætta að virka. Sú aðgerð sem Frjálslyndi flokkurinn boðar í auglýsingunni jafngildir því uppsögn EES-samningsins.
Þetta er svona.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:21 | Slóð | Facebook
1.4.2007 | 21:19
Danska er ekki tungumál
1.4.2007 | 12:47
Hallur Magnússon
30.3.2007 | 09:17
Opið frjálslynt lýðræði
Það eru að koma kosningar. Því er ekki úr vegi að velta fyrir sér hvert hlutverk hins opinbera á að vera. Fyrst þarf að greina hvað eiga að vera sameiginleg viðfangsefni samfélagins og svo að svara hvernig hið opinbera á að takast á við þessi viðfangsefni. Þegar því hefur verið svarað gerist tvennt; ríkið innheimtir skatt af borgurunum og endurdreifir svo út til samfélagsins eftir sínum fyrirfram skilgreindu stjórnmálalegu áherslum. Tekist er á um hver eigi að fá hvað, hvenær, hvar og með hvaða hætti. Þetta eru viðfangsefni stjórnmálanna í sinni nöktustu mynd.
Frelsi, velferð, velsæld
Þetta er mitt svar: Frelsi, velferð og velsæld eru þau þrjú lykilorð sem opið frjálslynt lýðræðisþjóðfélag getur notað sem leiðarhnoð í átt að betra þjóðskipulagi. Í viðleitni til að vefa þessa þætti saman má skipta hlutverki hins opinbera í tvennt. Á tekjuhliðinni þarf að hafa frelsi og frjálslyndi að leiðarljósi. Borgararnir eiga að ráða því sjálfir hvernig þeir afla sinna tekna og haga sínu lífi að öðru leyti. En þegar kemur að gjaldahliðinni á hið opinbera hins vegar að hafa velferð allra að leiðarljósi, stuðla að því að borgararnir hafi jöfn tækifæri til starfa, heilsu og menntunar og tryggja að enginn þurfi að líða skort. Ríkisvaldið á semsé að virða frelsi manna en tryggja um leið velferð allra. En það á ekki að skipta sér að siðferðislegum álitaefnum, um það getur hið borgaralega samfélag séð. Í raun er þetta kenningakerfi ósköp einfallt; með því er markaðsöflum beitt óhindrað til auðsöfnunar en um leið tryggt að velferð og jöfn tækifæri skili sér til allra. Þetta er kannski kjarni opinnar frjálslyndrar velferðarstefnu sem byggir á lýðræðislegum grunni.
Meira frelsi ...
En ríkisvaldið á ekki aðeins að virða frelsi manna og tryggja velferð heldur á það líka að stuðla að almennri efnahagslegri velsæld og treysta hinn efnahagslega grunn sem þjóðfélagið hvílir á. Hér skiptir mestu að búa til stöðugan ramma utan um atvinnulifið þannig að borgararnir hafi fullt frelsi til auðsöfnunar. En eftir því sem auðsöfnun almennra borgara er auðveldari og umhverfið einfaldara því meiri tekjur fær ríkisvaldið í sínar hendur til endurdreifingar eftir samfélagslegum forgangsatriðum og stjórnmálalegum áherslum. Með skynsamri efnahagsstjórn og með því að afnema höft á athafnafrelsi manna á nú að vera hægt að lækka skatta og aðrar álögur hér á landi. Háir skattar duga nefnilega ekki einir og sér til að tryggja velferðina ef frelsið skortir.
... aukin velferð
Þrátt fyrir mörg mikilvæg skref í frelsisátt, bæði í gegnum EES-samninginn og með viðamikilli einkavæðingu ríkisfyrirtækja, hefur heildarskattheimta hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu eigi að síður aukist undanfarin ár, samkvæmt gögnum OECD, sem Stefán Ólafsson prófessor hefur tekið saman. Og enn eru sum svið samfélagsins rígbundin á klafa óhagkvæmra hafta, til að mynda í landbúnaði. Einnig má nefna jafn ólík svið og höft á fjárfestingum í sjávarútvegi, sérleyfi á sumum flutningaleiðum og jafnvel verslun með áfengi. Að mínu viti er meginverkefnið framundan þó að lækka útgjöld almennings og auka þannig ráðstöfunartekjur fólksins. Það verður aðeins gert með því að koma böndum á verðbólgu, ná niður vöxtum og snarlækka matvælaverð.
Þessi grein birtist í Blaðinu í dag.
29.3.2007 | 09:21
Blessuð sértu borgin mín
Má til með að benda á áhugaverðan fund á laugardag. Íbúasamtök í höfuðborginni ætla þá að fjalla um íbúalýðræði. Fundurinn fer fram í Tjarnarsal Ráðhússins kl.13:00. Meðal fyrirlesara er faðir minn, Einar Eiríksson, sem mun fjalla um íbúalýðræði og borgarskipulag. Á eftir honum mun Bryndís Schram fjalla um manninn og maskínuna. Pallborð fylgir á eftir. Fyrst munu borgarfulltrúar sitja fyrir svörum og síðan þingmenn Reykvíkinga ásamt samgöngumálaráðherra.
28.3.2007 | 10:38
Geir og ég
Eitt eðli blaðamennsku er að draga fram ólík sjónarmið og stilla fram sem andstæðum. Þetta eðili blaðamennskunnar hefur augljósa kosti en einnig galla. Blaðið hefur bæði í gær og í dag gert einum þræði úr bók minni, Opið land, góð skil. Er ég blaðinu þakklátur fyrir það.
Á einum stað í bókinni velti ég fyrir mér hvort persónuleg óvild milli Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins í ríkisstjórn hafi hert Davíð í andstöðunni við aðild að ESB þegar Jón Baldvin fór að tala fyrir að ESB-aðild í aðdraganda þingkosninganna 1995. Þetta er raunar útúrdúr í bókinni, hún fjallar að mestu leyti um allt aðra hluti. En semsé, árið 1990 talaði Davíð fyrir aðild að Evrópubandalaginu (Sjá viðtal Hannesar Hómsteins við Davíð í bókinni Island - Arvet fran Thingvellir sem kom út hjá Timbro útgáfunni í Svíþjóð 1990) en þegar Jón tók upp þá stefnu að sækja beri um ESB-aðild, eftir að EES-samningurinn hafði gengið í gildi árið 1994, var Davíð semsé kominn á aðra skoðun. Var þá á móti ESB-aðild og ósammála Jóni. Síðar átti Davíð eftir að herðast enn í andstöðunni við ESB. Árið 2002 kallaði hann ESB "eitthvert ólýðræðislegasta skriffinnskubákn, sem menn hafa fundið upp." Ég held því fram að þessi harða andstaða við evrópskt samstarf sé að einhverju leyti í mótsögn við hefð Sjálfstæðisflokkins sem lengi var alþjóðasinnaðastur íslenskra stjórnmálaflokka.
Í Blaðinu í gær var ég spurður hvort greina mætti stefnubreytingu hjá Sjálfstæðisflokknum nú eftir að skipt hefur verið um forystu. Ég svaraði því til að núverandi forysta flokksins talaði allavega með mildilegri hætti heldur en Davíð og hans menn.
Þessi ummæli mín eru borin undir Geir H. Haarde í Blaðinu í dag en lögð fyrir hann með meira afgerandi hætti en ég hefði kosið. Enda er það eðli blaðamennskunnar að skerpa á andstæðunum. Geir vildi nú ekki kannast við stefnubreytingu í málinu en segir svo að hann sjái heldur enga ástæðu til að munnhöggvast við mig um það. Ég er á sama sinnis. Ég sé enga ástæðu til að munnhöggvast við Geir um þetta atriði. Sannleikurinn er nefnilega sá að mér líkar afskaplega vel við Geir og ber fyrir honum djúpstæða virðingu, bæði sem manni og stjórnmálamanni. Við erum ekki alltaf sammála en staðreyndin er eigi að síður sú að fáir menn eru jafn vel að því komnir að sitja í stóli forsætisráðherra. Ég hef líka lítillega fengið að kynnast Geir persónulega. Þau kynni hafa sannfært mig um að þar fer gegnheill maður og góður leiðtogi fyrir sitt lið.
Þetta er svona.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:05 | Slóð | Facebook
27.3.2007 | 22:15
Ég varð óléttur fyrr í kvöld
Fór að spjalla við fólkið í Íslandi í dag á Stöð 2, fyrir fréttirnar í kvöld. Steingrímur Ólafsson (Denni) tók á móti mér í gerfi þungaðrar konu sem komin er sex mánuði á leið. Var í vesti sem líkir eftir því, ríflega sex kíló framan á honum. Ég kunni ágætlega við hann óléttan en hann var eitthvað kvarta undan að bumban tæki í bakið. Ég fékk að prófa. Ég var semsé vanfær í um það bil eina mínútu fyrr í kvöld. Það dugði mér alveg. Þetta eru óskapleg byrði að bera framan á sér. Hvað þá í heila níu mánuði.
Þetta er svona.
27.3.2007 | 09:40
Ekki bara Evrópa
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:42 | Slóð | Facebook
26.3.2007 | 23:07
Hugaður prófessor
26.3.2007 | 22:30
Leiðinlegt sjónvarp
Af hverju er aldrei neitt í sjónvarpinu á mánudagskvöldum? Mánudagskvöld ættu að vera bestu sjónvarpskvöld vikunnar. Ekkert um að vera í skemmtana- og menningarlífinu og allir heima. Er að reyna að horfa á þáttinn Heros á Skjá einum. Þetta eru bara ekki nógu áhugaverðir þættir til að ég nái að festa hugann við hann. Kveikti þess í stað á tölvunni og röfla í ykkur.
Þetta er svona.
Bloggvinir
- Davíð Logi Sigurðsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðfríður Lilja
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Þórarinn Eldjárn
- Aðalheiður Sigursveinsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Trúnó
- Magnús Árni Magnússon
- Dofri Hermannsson
- Hlynur Hallsson
- Lára Stefánsdóttir
- Hrannar Björn Arnarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Torfi Frans Ólafsson
- Karl Pétur Jónsson
- Hlynur Sigurðsson
- Forvitna blaðakonan
- Borgar Þór Einarsson
- Bjarni Harðarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Vilborg G. Hansen
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Pétur Björgvin
- Hrannar Baldursson
- Baldvin Jónsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Tómas Þóroddsson
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Þorleifur Ágústsson
- Stefán Þórsson
- Guðjón Bergmann
- Bleika Eldingin
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Baldur Kristjánsson
- Jón Þór Bjarnason
- Róbert Björnsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Helgi Jóhann Hauksson
- Jónína Benediktsdóttir
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Eiríkur Briem
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- íd
- Steindór J. Erlingsson
- Hallur Magnússon
- Jón Þór Ólafsson
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigríður Karen Bárudóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Vestfirðir
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Haukur Már Helgason
- Gylfi Þór Gíslason
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Vefritid
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Þekkingarsamfélagið
- Anna Sigrún Baldursdóttir
- Þórdís tinna
- Bergur Thorberg
- Valbjörg
- Ása Richardsdóttir
- Júlíus Brjánsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Páll Ingi Kvaran
- Daði Einarsson
- Svandís Nína Jónsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Birgitta Jónsdóttir
- Eygló Sara
- Gils N. Eggerz
- Gísli Tryggvason
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Hannibal Garcia Lorca
- Hlekkur
- Hvíti Riddarinn
- Jón Gunnar Bjarkan
- Karl Tómasson
- Loopman
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Stefán Örn Viðarsson
- Sæþór Helgi Jensson