Færsluflokkur: Bloggar
30.1.2007 | 22:28
Nei, danir láu víst ekki í því
Ég á engin orð til að lýsa þeim tilfinningalegu veðrabrigðum sem urðu á heimili mínu þegar danir stálu sigrinum í handboltanum áðan.
Þvílík vonbrigði!
Það eina sem gæti grætt sært Íslendishjartað er ef einhver útrásarvíkingurinn myndi kaupa Tívolí, strax í dag, og læti Stuðmenn spila Í bláum skugga á hverju einasta kvöldi, allt þar til við fáum annað tækifæri til að leggja kafrauða Baunana.
Hvernig er það, getum við ekki bara sett Björgólf í málið?
Draumurinn úti í Hamborg - Danir sigruðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2007 | 10:10
Nú liggja danir í því
Danir eru sannfærðir um léttan sigur í handboltanum í kvöld. Telja litla fyrirstöðu í íslenska liðinu.
Danir hafa í raun aldrei haft nokkurn skilning á því að líf geti þrifst á Íslandi, sem þeir kalla gjarnan klettaeyjuna.
Þegar ég bjó í Danmörku vildu sumir þeirra endilega ræða við mig um þann mikla fjárstyrk sem þeir voru sannfærðir um að Ísland fengi enn frá dönsku ríkisstjórninni. Voru vissir um að Danir héldu lífinu í Íslendingum með einhverskonar félagsmálaaðstoð úr danska ríkiskassanum.
Það er þess vegna sem flestir danir skilja hreinlega ekki umsvif íslensku útrásarvíkinganna í dönsku atvinnulífi.
Nú verðum við að leggja allt í sölurnar og beygja bölvaða baunana í duftið í leiknum á eftir. Þá verður svo miklu skemmtilegra að spássera um á Strikinu. Og spjalla gorgeirslega við dönsku félagana frá námsárunum.
29.1.2007 | 12:00
Er allt að verða vitlaust?
Moggabloggið er þjált og þægilegt tæki, líka fyrir menn eins og mig sem eru svolítið tæknihaltir.
Svo virðist sem allt sé að verða vitlaust í stjórnmálalífi landsins í aðdraganga kosninga, því getur verið gaman að hafa vettvang sem þennan til að taka þátt í blaðrinu.
Frjálslyndi flokkurinn hefur lagt sig inn í þekkt mengi hægri þjóðernisflokka og í það minnsta þrír nýir hópar boða framboð, svokallað Framtíðarland og tveir hópar myndaðir úr allsvipuðu samkrulli aldraðra og öryrkja. Hingað til hef ég ekki talið að Framtíðarlandið ætti mikla möguleika. Hipp og kúl framboð úr 101 Reyjavík höfðar ekki mikið út fyrir eigin hóp. En ef við bætast þungaviktarmenn á borð við Jón Baldvin (sem fór mikinn í Silfri Egils í gær) og Ómar Ragnarsson (sem hefur farið mikinn í marga mánuði) lítur dæmið allt öðru vísi út.
Þá gæti dregið til tíðnda íslenskum stjórnmálum.
28.1.2007 | 19:27
Íslenski þjóðarflokkurinn
28.1.2007 | 13:38
Frjálslyndir óstjórntækir
Niðurstaða varaformannskjörsins í Frjálslynda flokknum gerir að verkum að hann er orðinn óstjórntækur. Þjóðernisöflin hafa endanlega tekið flokkinn yfir. Gildir einu hvor Margrét Sverrisdóttir verður áfram í flokknum eða ekki, henni hefur verið hafnað sem leiðtoga að nokkru tagi innan flokksins. Málfutningur Magnúsar Þórs Hafsteinssonar í málefnum innflytjenda hefur verið með þeim hætti að ómögulegt er fyrir Samfylkingu og Vinstri græna að vinna með flokknum í ríkisstjón, allavega á meðan Magnús er í stóli varaformanns. Kaffibandalagið er þar með að engu orðið. Líklegra að Samfylking og VG biðli til Framsóknar að kosningum loknum. Ef stjórnin fellur er þó líka möguleiki að Sjálfstæðisflokkur og Framsókn kippi Frjálslyndum upp í með sér, hafi þeir geð á því.
28.1.2007 | 13:28
Kominn á moggabloggið
Bloggvinir
- Davíð Logi Sigurðsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðfríður Lilja
- Helgi Seljan
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Hreinn Hreinsson
- Þórarinn Eldjárn
- Aðalheiður Sigursveinsdóttir
- Dagbjört Hákonardóttir
- Trúnó
- Magnús Árni Magnússon
- Dofri Hermannsson
- Hlynur Hallsson
- Lára Stefánsdóttir
- Hrannar Björn Arnarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Torfi Frans Ólafsson
- Karl Pétur Jónsson
- Hlynur Sigurðsson
- Forvitna blaðakonan
- Borgar Þór Einarsson
- Bjarni Harðarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Friðrik Þór Guðmundsson
- Vilborg G. Hansen
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Sigfús Þ. Sigmundsson
- Jóhann Ágúst Hansen
- Ingólfur Þór Guðmundsson
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Pétur Björgvin
- Hrannar Baldursson
- Baldvin Jónsson
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Tómas Þóroddsson
- Tíðarandinn.is
- Stjórnmál
- Dagbjört Ásgeirsdóttir
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Þorleifur Ágústsson
- Stefán Þórsson
- Guðjón Bergmann
- Bleika Eldingin
- Ingvi Hrafn Jónsson
- Baldur Kristjánsson
- Jón Þór Bjarnason
- Róbert Björnsson
- Hlynur Jón Michelsen
- Helgi Jóhann Hauksson
- Jónína Benediktsdóttir
- Átakshópur um heilbrigða skynsemi í pólitískri umræðu
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Eiríkur Briem
- Sigurður Á. Friðþjófsson
- íd
- Steindór J. Erlingsson
- Hallur Magnússon
- Jón Þór Ólafsson
- Mafía-- Linda Róberts.
- Sigríður Karen Bárudóttir
- Sigurður Sigurðsson
- Guðfinna S. Bjarnadóttir
- Vestfirðir
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Haukur Már Helgason
- Gylfi Þór Gíslason
- MARKAÐSSETNING Á NETINU
- Vefritid
- Hlöðver Ingi Gunnarsson
- Valgerður Halldórsdóttir
- Þekkingarsamfélagið
- Anna Sigrún Baldursdóttir
- Þórdís tinna
- Bergur Thorberg
- Valbjörg
- Ása Richardsdóttir
- Júlíus Brjánsson
- Ragnheiður Ólafsdóttir
- Evrópusamtökin, www.evropa.is
- Páll Ingi Kvaran
- Daði Einarsson
- Svandís Nína Jónsdóttir
- Alfreð Símonarson
- Birgitta Jónsdóttir
- Eygló Sara
- Gils N. Eggerz
- Gísli Tryggvason
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Hannibal Garcia Lorca
- Hlekkur
- Hvíti Riddarinn
- Jón Gunnar Bjarkan
- Karl Tómasson
- Loopman
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Sigurður Kaiser
- Stefán Örn Viðarsson
- Sæþór Helgi Jensson