Leita í fréttum mbl.is

Háskólarnir í prófi

Háskólarnir eru nýkomnir úr prófum. Nemendur luku sínum prófum fyrir nokkru en nú var semsé komiđ ađ háskólunum sjálfum. Einkunnirnar voru ađ koma í hús. Ríkisendurskođun birti í vikunni skýrslu um kostnađ, skilvirkni og gćđi háskólakennslu. Alveg eins og nemendur sem bíđa í nagandi óvissu eftir vitnisburđi um frammistöđu sína höfum viđ sem störfum í umrćddum háskólum beđiđ spennt eftir einkunn Ríkisendurskođunar. Ađ vísu voru ađeins ţrjár námsdeildir metnar ađ ţessu sinni, viđskiptafrćđi, lögfrćđi og tölvunarfrćđi. Sjálfur starfa ég í félagsvísindadeild viđ Háskólann á Bifröst svo ţessi úttekt nćr nú ekki til mín. Samt var ég orđinn ansi spenntur.

Sem kennari er ég vanur ţví ađ nemendur kvarti yfir einkunnum, reyni ađ toga ţćr upp međ allskonar afsökunum og tuđi, jafvel hótunum í einstaka tilvikum. Ţađ hefur aldrei gengiđ. Á sama hátt hafa stjórnendur háskólanna reynt ađ hífa upp einkunn sína í samtölum viđ fjölmiđla undanfarna daga. Ţađ er svo sem eđlilegt. En alveg sama hvađ menn spinna í fjölmiđlum ţá er erfitt ađ breiđa yfir ţá einkunn Ríkisendurskođunnar ađ háskólarnir á Íslandi standa sambćrilegum erlendum háskólum nokkuđ ađ baki. Fjárframlög til ţeirra eru einfaldlega of lítil. Ţetta ţurfum viđ ađ laga.

Akademískt ágćti
Fjölmiđlar slógu ţví upp ađ Háskóli Íslands hafi fengiđ hćstu einkunn í skýrslu Ríkisendurskođunar. Ţađ er vissulega rétt ađ ákveđnu leyti, en ekki öllu. Margir af reyndustu og virtustu frćđimönnum landsins starfa viđ ţennan elsta og stćrsta háskóla landsins. Háskóli Íslansds er sannarlega flaggskip háskólaflórunnar á Íslandi og hefur í gegnum tíđina stađiđ sína plikt vel, - komiđ ţessari ţjóđ til mennta. Ríkisendurkođun gaf skólanum hins vegar falleinkunn á ýmsum öđrum sviđum en ţví sem snýr ađ akademísku ágćti. Til ađ mynda eru ţar allt of margir nemendur á hvern kennara, ađstađa er léleg og allt of margir hrökklast úr námi. Laun eru líka svo lág ađ margir kennarar neyđast til ađ verja hluta af starfsorku sinni fyrir utan skólann til ađ eiga fyrir salti í grautinn.

Ánćgja í einkaskólunum
Ţrátt fyrir ađ einkareknu skólarnir, Háskólinn í Reykjavík og Háskólinn á Bifröst, fái lćgri einkunn en HÍ ţegar kemur ađ akademískri stöđu ţá eru nemendur viđ ţessa skóla ánćgđari međ námiđ sitt og telja ţjónustu kennara og annars starfsfólks betri. Fyrir okkur á Bifröst er margt jákvćtt í skýrslu Ríkisendurskođunnar en ţar eru einnig ábendingar um margt sem ţarf ađ laga. Til ađ mynda er hlutfall kennara međ doktorspróf ekki nógu hátt en á móti kemur ađ rannsóknarafköst kennara á Bifröst er međ hćsta móti, enda eru ţar starfrćkt ýmis frćđasetur. Háskólinn á Bifröst er dýrastur og starsmannakostnađur á hvern fullskráđan nemanda hćstur. Ţađ kemur til af ţeirri stefnu skólans ađ kenna í litlum hópum. Á Bifröst eru fćstir nemendur á hvert akademískt stöđugildi. Hver kennari hefur ţví meiri tíma fyrir hvern nemenda í Bifröst heldur en í öđrum háskólum á Íslandi.

Frćđin eru víđa
Lengi vel var frćđastarf á Íslandi svo til allt unniđ innan veggja HÍ. Undanfarin ár hefur frćđasamfélagiđ hins vegar sprengt utan af sér veggina og frćđimenn farnir ađ starfa út um allar trissur. Vöxtur einkaskólanna hefur veriđ međ hreinum ólíkindum og frćđasamfélög veriđ mynduđ víđa. Til ađ mynda starfa tugir frćđimanna innan vébanda Reykjavíkurakadeíunnar. Í lokin má til gamans nefna ađ Háskólasetur Vestfjarđa stendur nú um helgina, ásamt fleirum, fyrir alţjóđlegri ráđstefnu um ţjóđ og hnattvćđingu á Hrafnseyri viđ Arnarfjörđ. Frćđin eru nú komin víđar og fjölbreytnin blessunarlega miklu meiri en áđur.

Ţessi grein birtist í blađinu í dag.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Um Eirík

Eiríkur Bergmann Einarsson
Eiríkur Bergmann Einarsson

Stjórnmála- fræðingur


Nánari upplýsingar
www.eirikur.bifrost.is
Ritaskrá

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband